Spore
Leikurinn SPORE hefur verið 8 ár í framleiðslu, en leikurinn er gerður af sama höfundi og SIMS leikjunum. Leikurinn er klárlega einhver fullkomnasti leikur sem komið hefur út á PC og algjör bylting í tölvuleikjum, Leikmenn upplifa stórbrotið ferli sem hefst við upphaf lífsins og endar með heimsyfirráðum. Allt þetta er gert á sama skemmtilega hátt og í Sims leikjunum, en leikurinn notar sama stjórnkerfi og aðdáendur Sims leikjana þekkja.
Skrifað: 07/09/2008 af Hrafn Sigvaldason
